Fasteignasalan Fagvís kynnir:Nýtt verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð í Hveragerði.
Húsið er
afar vel staðsett með mikið auglýsingagildi og blasir við frá þjóðvegi 1.
Húsið er staðsett við hliðina á
verslunarmiðstöðinni Sunnumörk, bjart, með stórum gluggum og mikilli lofthæð.
Frábær eign með
mikla möguleika.Ath. að aðeins er eitt bil eftir en það er
113fm.Gert er ráð fyrir
léttum iðnaði í húsinu en á efri hæð hússins eru 9 íbúðir.
Engar innkeyrsluhurðir eru á húsnæðinu en þó eru hurðir stórar og gengið frá þeim á þann hátt að hægt er að keyra inn vörubretti.
Húsið er
fullklárað að utan, einangrað og klætt með sements-fiberplötum með múrsteinsáferð, PVC gluggar og útihurðir.
Lóðin er malbikuð með
máluðum bílastæðum og
hitalagnir í gangstéttum.
Nánari upplýsingar:
Fagvís - Fasteignasala Hveragerðis
Breiðumörk 13
Sími: 483-5900 / [email protected]
Kristín Rós MagnadóttirLöggiltur fasteignasali og lögfræðingur
S : 860-2078
[email protected]Eva Björg ÁrnadóttirNemi til lögg. fasteignasala
S : 857-6600
[email protected]Elínborg María ÓlafsdóttirNemi til lögg. fasteignasala
S: 861-6866
[email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fagvís - Fasteignasala Hveragerðis bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.