Fagvís - Fasteignasala Hveragerðis kynnir í einkasölu :
Höfum fengið í sölu eignina að Klettagljúfri 19, 303fm að stærð.
Um er að ræða efri hæð í tvíbýli.
ATH greidd hafa verið gatnagerðargjöld að húsum sem reisa má á lóðinni en
það eru 10 hesta hesthús og allt að 100fm gróðurhús.
Skipulag eignarinnar er eftirfarandi :Anddyri
Eldhús og stofa saman í stóru alrými
Tvö baðherbergi og eitt gestasalerni
Fimm rúmgóð svefnherbergi
Þvottahús
Geymsla
Bílskúr
Komið er inn í
anddyri en þar er gert ráð fyrir þreföldum fataskáp. Innangengt er úr forstofu á
gestasnyrtingu.Frá
anddyri er gengið inn í
alrýmið en þar er bæði
stofa, borðstofa og eldhús. Samtals um 75fm.
Úr
eldhúsi er gengið inn á gang sem liggur bæði að
þvottahúsi og
bílskúr.
Þvottahúsið er um 4fm en bílskúrinn 46fm. Inn af bílskúrnum er 6fm geymsla.
Svefnherbergin eru fimm og
baðherbergin þrjú. Búið er að parketleggja svefnherbergin en baðherbergin eru ókláruð.
Hægt er að ganga út á
svalir frá þremur stöðum. Hurðir eru frá stofu, baðherbergi og einu af svefnherbergjunum.
Lóðin liggur við Rauðalæk og er með útsýni yfir Ölfusið, Hengilinn, Reykjafjall og Hveragerði. Húsið stendur á um fimm þúsund fm lóð.
Á byggingarreit má byggja allt að tíu hesta hesthús og allt að 100 fm gróðurhús.
Eignin var byggð árið 2007.Eignin mun afhendast á byggingarstigi 5, tilbúin til innréttinga.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
Fagvís - Fasteignasölu Hveragerðis
Breiðumörk 13
Sími: 483-5900 / [email protected]
Kristín Rós MagnadóttirLöggiltur fasteignasali og lögfræðingur
S : 860-2078
[email protected]Eva Björg ÁrnadóttirNemi til lögg. fasteignasala
S : 857-6600
[email protected]Elínborg María ÓlafsdóttirNemi til lögg. fasteignasala
S : 861-6866
[email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fagvís - Fasteignasala Hveragerðis bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.